Fann það!

 Ég var hérna um daginn að rifja upp vísu sem ég lærði einhverntíma, en skautaði ekki betur á svellinu en að ég bullaði tóma steipu, en hér er það sem ég vildi sagt hafaWink

Sumri hallar, hausta fer,

heyri snjallir ýtar,

hafa fjallahnjúkarnir

húfur mjallahvítar.

Girnast allar elfur skjól

undir mjallar þaki,

þorir varla að sýna sól sig að fjallabaki.

Verður svalt því veðri er breytt,

vina eins er geðið,

þar sem allt var áður heitt,

er nú kalt og freðið

Sestu hérna sólskinsbarn, sumar hjá þér dvelur,

meðan haustsins gráa garn

grösin jarðar felur

(Baldur Ragnarsson)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband