Súkkulaðikaka

Á morgun, 28. janúar verður stóri strákurinn minn 16 ára, og hann er svo stór að hann slagar hátt uppí 190cm. Þetta er algjör dugnaðarforkur og mamman að sjálfsögðu voða stolt af honum.

En er þá ekki bara kominn tími á uppskrift.

Heima hjá mér er þetta uppáhalds afmæliskakan:

Súkkulaðikaka:

1 1/2 bolli sykur

125 gr. smjörlíki

2 egg 

1 tsk. lyftiduft

1tsk. sódaduft

1/2 tsk. salt

2 1/2 msk. bökunarkakó

1 bolli súrmjólk

1 tsk. vanilludropar

2 1/2 bolli hveiti

Smjör og sykur þeytt létt og ljóst, síðan eggin eitt og eitt í einu, svo rest af blautum efnum. Síðast er öllum  þurrefnum bætt við og hrært mjög varlega. Bakist á ca 175°C aðeins neðar en í miðjum ofni i ca 15-20 mín.

Þetta eru 2 stórir þéttir botnar.

Krem á milli:

300 gr. flórsykur

2 mtsk. kakó

150 gr. smjörlíki

1/2 tsk.. vanilludropar

1 egg

allt þeytt vel saman, ef kremið er svakalega þykkt, þá er 1 mtsk. af sjóðandi heitu vatni bætt við.

Krem ofaná:

125 gr suðusúkkulaði

 150 gr. Flórsykur

75 gr. smjör

1 egg

Bræðið súkkulaði og smjörlíki við vægan hita.

hrærið saman egg og flórsykur og bætið svo súkkulaðismjörinu saman við og hrærið vel.

Nammmmmiiiii.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með soninn  Alveg ekta dagur til að fæða börn...ljúfir vatnsberar, sem þau eru

Sigrún Jónsdóttir, 28.1.2009 kl. 13:14

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með drenginn þinn

Ásdís Sigurðardóttir, 28.1.2009 kl. 14:42

3 identicon

hæ hæ

til hamingju með tröllið...  þau eru yndisleg þessi janúarbörn! Kannski maður skelli í þessa uppskrift. Njótið dagsins, kv. Arna Akureyringur

Arna (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 23:29

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Til hamingju með strákinn.

Uppskriftin er mjög girnileg.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.1.2009 kl. 12:31

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með stóra stóra strákinn

Nú veit ég hvað ég baka í dag

Solla Guðjóns, 30.1.2009 kl. 10:09

6 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

HA! Arna ætlar þú að skella í uppskrift af yndislegu barni eða köku ???? hehe, nei, ég veit þú átt ljúft janúarbarn.

 Takk allar fyrir kveðjurnar

Svala Erlendsdóttir, 30.1.2009 kl. 13:00

7 Smámynd: www.zordis.com

Til lukku með strákinn þinn, þann 28 og alla aðra daga! Ég á lítinn 29 ára bróðir sem kom þann mæta dag í heiminn.

www.zordis.com, 2.2.2009 kl. 10:13

8 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl Mín kæra Svala!

Það var líka afmæli hér í janúar.Yngri sonur okkar  varð tvítugur þann 31.

Bakaði súkkulaði kökur fyrir afmælisboðið.Já það dugði ekki bara ein her fuku þrjár  af því tilefni+ allt hitt.

Annars koma hér  síðbúnar afmæliskveðjur

     Dóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 4.2.2009 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband