Sjálfhreinsibúnaður

Eitthvað svipað og sjálfslökkvibúnaðurinn sem ég lét í sjónvarpið. Vildi óska að tölvan hefði svona sjálfhreinsibúnað. Þegar allt of mikið af rusli og dánlóti er búið að safnast saman í einni  tölvu gefst hún upp...  ég hef ekki komist á netið í nokkra daga. Devil Fjölskyldan í rusli.Crying "þeir" hljóta að fara að finna upp eitthvað sem fer bara í gang í tölvunni þegar ruslið er orðið of mikið. Þessir "þeir" Cooleru nú svo hrikalega klárir að það 1/2 væri nóg. Ég er nefnilega ekki eins klár í tölvuhreinsun og "þeir" ég þarf alltaf aðstoð ef tölvan er eitthvað með leiðindi.

Ég er nú samt svo heppin að ég er með rauða neyðarlínu í símann hjá einum svona "þeir" kalli. Hann kom bara alveg á handahlaupum þegar kallið kom og reddaði þessu á nóinu.

En ég er komin með leyniplan... Ég ætla að senda strákana mína í tölvugúrúaskóla svo þeir geti aðstoðað mömmu gömlu í ellinni að flikka upp á tölvugreyið, eða bara "láta" þá finna upp svona sjálfhreinsibúnað...Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Svala mín.

Þetta er virkilega skemmtilegur pistill.  Setning dagsins: 

"Þessir "þeir" eru nú svo hrikalega klárir að það 1/2 væri nóg."

Flott hjá þér að senda strákana þína í tölvugúrúaskóla.

Guð blessi þig

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.3.2008 kl. 10:30

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha ég myndi fá mér svona sjálfhreinsibúnað ef hann fengist. börnin alltaf að skamma mig fyrir hvað ég er óskipulögð í vistunum á tölvunni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 13:31

3 Smámynd: Solla Guðjóns

JÁjájájá.........það veit sá sem allt veit og fleiri til að ég einfaldlega þarf á svona uppfinningu að halda.......

Ég er alltaf að fikta og svo bara skeður það hviss bamm og maskínan neytar að gera nokurn hlut........núna villhún slökkva á sér jafnóðum og kveikt er á henni..........................

Solla Guðjóns, 10.3.2008 kl. 15:31

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er gift einum svona hreinsibúnaði, var hrikalega sniðug þegar ég valdi hann úr hópi umsækjenda

Huld S. Ringsted, 11.3.2008 kl. 20:33

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Hahaha gott hjá þér Huld.........þegar ég bauð út var orðið talva varla fariðið að þekkjast

Solla Guðjóns, 12.3.2008 kl. 09:47

6 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Hihi gott hjá þér Huld. Sko þú efur verið með réttu ráði þegar þú hefur valið þér umsækjanda. 

Annars er oft gott að biðja unglinginn að kíkja á apparatið og þá lagast nú ótrúlega margt.

Svo er málið að "láta" börnin sín gera eitthvað, ætli þeir hlíði manni nokkuð???

Svala Erlendsdóttir, 12.3.2008 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband