Æfinga og tilraunaskóli Kennaraháskóla Íslands

....eða bara Háteigsskóli eins og hann heitir núna.

Þetta var minn grunnskóli og var alveg ágætur. Í dag var ég að fá bréf innum lúguna til að minna mig á að það eru 10 ár síðan við hittumst síðast og aldarfjórðungur síðan grunnskólagöngunni lauk. ALDARFJÓRÐUNGUR!! Hrikalega er maður orðinn gamall. En við ætlum að hittast upp úr mánaðarmótum og vonandi komast sem flestir.

Hef ekki verið í neinu sambandi við krakkana síðan ég veit ekki hvenær. Hitti eina bekkjarsystur fyrir ári síðan, hún þekkti mig en ég þekkti hana ekki. Hitti svo einn bekkjarbróður núna í haust og ég þekkti hann en hann þekkti mig ekki. Jamm... svona breytast mennirnir með árunum.

En ég hlakka ótrúlega mikið tilWink 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bogi Jónsson

Góða skemmtun þegar þú ferð að hitta gömlu skólafélagana

það er annars merkilegt hvað fólk breytist lítið nema hvað þau búa í eldri og sum stærri húsum (líkömum)

kv Bogi

Bogi Jónsson, 24.9.2007 kl. 18:27

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

hehe. já, svo hefur oft hrukkum fjölgað og hárum fækkað

Svala Erlendsdóttir, 25.9.2007 kl. 21:04

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 28.9.2007 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband