Yndisfagur snjórinn

Í gærkvöldi þegar ég kom af kóræfingu, var allt svo fallegt. Allir bílar með hvíta kollhúfu og drifhvít jörðin.

Ég tók mér góðan tíma að bursta af bílnum og þegar ég var búin var hann alveg jafn hvítur á fyrstu rúðunni sem ég hafði skafið. Jæja ég sest í bílinn sem var að byrja að hitna og set rúðuþurrkurnar á. 

Athygli mína vakti að þær stoppuðu yfir miðja rúðuna.... ég fór út og ýtti við þeim. Ekki nema von að þær væru þreyttar eftir mikla vinnu og erfiði út af allri bleytunni og skítnum á götunum undanfarna daga. En þær fóru ekki niður nema ég ýtti þeim alla leið. Jæja, ætli öryggin séu ekki farin, hugsaði ég og fór að leita að boxinu þar sem öryggin búa. Það gekk nú ekkert vel að finna það, en á endanum fann ég boxið en þar var ekkert auka öryggi svo ég ákvað að keyra út á næstu bensínstöð sem til allrar hamingju var mjög nálægt. 

Á bensínstöðinni var hvert einasta öryggi mælt, en ekkert var að þeim. Öll heil og heilbrigð eins og eitt öryggi getur verið.

Nú voru góð ráð dýr... eiginlega alveg rándýr.

Því tvennt var í stöðunni í þessari miklu snjókomu. Annað var að taka leigubíl alla leið frá Glæsibæ inn í Hafnarfjörð, eða biðja kallinn um að sækja mig. Ekki kom til greina að keyra heim því þá hefði ég ekkert séð út um gluggana. Það síðara varð fyrir valinu því svona rétt fyrir mánaðarmót tími ég ekki að splæsa í leigubíl.

Meðan ég beið, snjóaði án afláts. Fallegur mjúkur og hlýr snjór. Ef hægt er að kalla snjó hlýjan, það var allavega orðið hlýtt í bílnum... Alltaf öðru hvoru prufaði ég hvort þurrkurnar væru ekki bara búnar að hvíla sig og færu nú í gang. Bara fyrir mig. En það suðaði bara í þeim værðarlegt mal. Eftir tæpan hálftíma kom karlinn að sækja kerlu sína.

Þá er bara að panta tíma á bílaspítala og vona að það kosti ekki meira en einn leigubíll í Fjörðinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Ergilegt ástand.Hef einmitt lennt í þessu og þá var eitthvað sem öryggið er stt í búið að einangra sig þannig að það var bara að krafsa dáldi í það......síðan var það pússað upp þegar heim var kominð.

En víst er snjórinn falllegur og einhvern veginn lífgar hann alltaf upp á mig.

Knús dúllan mín.

Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 10:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ þetta er bæði gott og slæmt, fegurðin í sjálfri sér er dýrmæti.  En svo er svekkelsið yfir að komast ekki leiðar sinnar.  Sýnir bara að það geta verið þessir sjálfsögðu litlu hlutir sem skipta svo miklu máli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2008 kl. 14:10

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sælar stelpur. Fallegar lýsingar á snjónum sem oft getur verið til vandræða. Allt er gott sem endar vel. Guð blessi þig Svala mín.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.2.2008 kl. 17:48

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Orð dagsins er 'rúðuskafa' ...

& losa upp á þurrkunum í leiðinni.

Steingrímur Helgason, 29.2.2008 kl. 00:13

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Elsku Svala mín
Guð blessi þig og fjölskylduna
Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.3.2008 kl. 00:24

6 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Orð dagsins RÚ ÐU SK AFA hans afa hahahahahhahaaaa

Svala Erlendsdóttir, 1.3.2008 kl. 18:03

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Svala. Hann steingrímur var virkilega fyndinn  Gaman af fólki sem getur komið með svona fyndin innlegg.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.3.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband