Þetta er alveg ágætt hjá löggunni

Þegar fólk er hætt að þora niður í bæ til að fá sér enn öllara eða tvo vegna hættu á að vera laminn eða limlestur með flöskum og glösum, útmiginn af annarra manna hlandi eða bara ælt yfir mann (veit ég er gunga Blush ) þá er bara alveg kominn tími til að hrista upp í liðinu sem veður yfir allt og alla á skítugum skónum. Og eru ekki þessir götumígandi glasabrjótar þeir sömu og trompast alveg ef hundur mígur utaní staur? Veit ekki hvort hlandið er ógeðslegra, mannahland eða hundahland. Legg þetta alveg að jöfnu.  
mbl.is Um 120 útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta blessaða fólk er að skemmta sér, hvar er umburðarlyndið Svala mín? Þetta er svo örugglega alveg svakalega gaman, ódýrt og hefur engin eftirköst svo why not??

Það væri bara spennandi að fara einverja helgina niður í bæ og sjá hvort maður lifi það af.....

ps. takk fyrir síðast

Arna (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 22:35

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Jæja seigðu, þá er bara að skella sér í bæinn helst um mánaðarmót og á fullu tungli og gá hvort við lifum það af

Svala Erlendsdóttir, 11.9.2007 kl. 17:07

3 Smámynd: Solla Guðjóns

HMMMMMM...ég fer bara alls ekki í miðbæjinn...einu sinni ekki á fullu tungli...Þetta virðingarleysi er held ég mest óvirðing gagnvart sjálfum sér...eða hvernig getur maður verið stoltur af því að hegða sér svona

Solla Guðjóns, 15.9.2007 kl. 22:47

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæ ég er búin að setja meira um lesblindu viltu kíkja og kvitta til að koma þessu inn í umræðuna..Fyrirfram þökk Solla. Svo er ég bara held ég að fá tíma til að fara að skoða blogg bloggvinana minn.

Solla Guðjóns, 19.9.2007 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband