Gleðilega hátíð

Byrjaði daginn á því að fara með Valnum mínum og Kristrúnu systur í sund í breiðholtslauginni. Uppskárum sól og blíðu og líka smá roða í skinn. Fengum svo rúnstykki og snúð hjá Kristrúnu eftir allt svamlið,

Víðistaðatún var síðan heimsótt og þar var nú alveg yndislegt veður, fullt af fólki  og gleði og gaman.

Að sjálfsögðu var skundað í vöfflukaffi til Ingibjargar systur þar sem maður kemur aldrei að tómum kofanum hvað veitingar varðar, og við vorum greinilega svo þaulsetin að okkur var svo boðið í kvöldmat.

Held barasta að ég hafi ekki étið svona mikið í langan tíma.

Góður dagur að kveldi kominn og þjóðin verið sjálfstæð síðan 1944 sumsé í 64 ár. Ekki er það nú langur tími. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Þetta hefur verið góður dagur.....Um að gera að yfirgefa ekki svæðið fyrr en maður hefur fengið vel í sig

Solla Guðjóns, 18.6.2008 kl. 09:51

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

hehe

Svala Erlendsdóttir, 18.6.2008 kl. 14:27

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2008 kl. 01:25

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 19.6.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband