Well Well.....

Mín bara mætt í tölvuna og nú getur maður bara farið að láta í sér heyraWink

Tölvan var straujuð (um leið og dúkarnir og gardínurnar) svo allt mitt hafurtask, í eftirlætis netsíðum og póstföng og netföng og allt slíkt þurkaðist út. Er ekki búin að setja póstinn inn aftur, geri það við tækifæri.

Reyndar var hann Snæi vinur minn, sá snillingur, algjör hetja að bjarga myndum og allskonar skjölum sem voru í tölvunni. Það væri sumsé best að fara að setja allt verðmætt í tölvunni á disk og pappír áður en tölvan floppar aftur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Flott hjá þér. Búin að strauja tölvuna, gardínur og dúka fyrir jólin.

Allt þetta og meira til á ég eftir að gera. Aumingja ég  

Guð veri með þér.

Netfangið mitt er á sínum stað á bak við djókmyndina af mér.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.10.2008 kl. 16:33

2 Smámynd: Hófí

Hæhó

Vildi bara senda sakn-kveðjur :0) hvar ertu eiginlega??

;0)

Hófí

Hófí, 15.10.2008 kl. 17:49

3 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

ég er líka búin að vera í tölvuveseni, ákvað að skipta um símafyrirtæki og það fór gjörsamlega allt í rugl í gömlu tölvunni minni hún ræður ekki við einhverja nýja netþjóna svo við neiddumst til að snúa aftur í Vodafone en vonandi tollir þetta inni núna.

Guðrún Sæmundsdóttir, 15.10.2008 kl. 20:07

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eins gott að allt sé á hreinu í tölvunni Svala mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2008 kl. 20:32

5 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Blessuð og sæl Svala!

Gott að það var bara tölvan, hélt að þú værir hætt að blogga

Vonandi kemur margt og mikið merkilegt frá frú Svölu næstu daga!

Sendi þér smá knús,því það er knús dagur í dag.

Guð blessi þig og þína   Dóra Ásgeirs,.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 15.10.2008 kl. 21:24

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjjjjjjj...gaman að sjá þig aftur dúllan mín.

Láttu mig vita allt um tölvuraunir og hvernig þær vinda upp á sig.

Knús.

Solla Guðjóns, 17.10.2008 kl. 08:27

7 identicon

Vont þegar yfirheilinn tekur sér hvíld ... Myndirnar eru það mikilvægasta og vinsamlegast taka back up reglulega.

Zordis (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 10:58

8 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Hæ elsku dúllurnar mínar. Mikið er gaman að fá svona marga pósta. Littla hjartað hoppar alveg af kátínu

Nú er bara að setja öll netföng inn aftur, búin að kaupa diska til að setja myndir á, svo var ég bara að plata með að strauja gardínur og dúka, kanski ég biðji Snæja tölvustraujara að taka það líka að sér 

Ég tók mér pásu á haustmánuðum í kórnum en kem líklega galvösk eftir áramót að gaula með þeim, frétti að kórinn væri fluttur í nýtt húsnæði ennþá lengra frá Hafnarfirðinum

En nú get ég farið að bulla og blaðra á netinu eins og mín er von og vísa

Svala Erlendsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:38

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Hæ og hó.

"En nú get ég farið að bulla og blaðra á netinu eins og mín er von og vísa"

Bravó og Húrra.

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:45

10 identicon

Gott ad heyra í þér aftur, var sárt saknad:-)

Kv. Helga

Helga Ingólfsd (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband