Akureyrarferð

Akureyrarferðin var alveg hrikalega vel heppnuð.
-Saumó á föstudagskvöldið með hnallþórum að hætti Örnu
-Laugardagur fór í Spa með nuddi, fótabaði, heitum potti, kaffi og konfekti. Kaffihús á eftir og svo að sjálfsögðu rölt um bæinn og búðirnar skannaðar alveg eins og alvöru helgarferð í útlöndum ;o) Um kvöldið var farið út að borða sem var bara kósí en ekki var alveg hægt að hrópa húrra fyrir matnum og þjónustunni. og svo Var farið heim aftur í restar af hnallþóruborði Örnu.
-Sunnudagur hófst á náttfatamorgunverði og síðan farið í bakaríið við brúna eða ána (man ekki hvað það er). Ein okkar keyrði í bæinn, þrjár okkar fóru með flugi kl. 14:30 og gekk flugið stóráfallalaust fyrir utan mikinn hristing í flugtaki. Tvær ætluðu að taka flug um kvöldmatarleitið en þá var fluginu aflýst vegna illviðris í háloftunum. Svo ekki var um annað að gera fyrir þær en að gista þriðju nóttina hjá Örnu á Akur-Inn sem er sossum ekki slæmt því það er hið flottasta gistiheimili.
-Á mánudegi fékk ég SMS að þær hefðu lent um kl. 9:30 og þá var bara að bruna beint í vinnuna.
En í saumó á Akureyri var ákveðið að hafa næsta saumó 14. des. Þá verður pakkarugl og þemað í pökkunum á að vera "Eyðast" sumsé að innihald pakkanna muni eyðast fyrr en seinna, og þá er bara að leggja höfuðið í bleyti OG... það má ekki kosta meira en 700 kr.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Ummmmmmm hnallþóru partý með prjónana...

Sniðugar með pakkaruglið...

Solla Guðjóns, 7.11.2007 kl. 10:50

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Reynum alltaf að hafa ótrúlega lítinn kostnað í pakkarugli, áskorun fyrir okkur að gera eitthvað sniðugt, t.d. smákökur í flottri krukku, búa til kerti eða sápu eða bara stórt kramarhús með ullarsokkum eða heimagerðum brjóstsykri. Þær eru alveg ótrúlega flinkar að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug.

Svala Erlendsdóttir, 8.11.2007 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband