Færsluflokkur: Dægurmál

Já góðan daginn!

18 millur á ári í tíkina. Hundar geta verið alveg yndislegir en kanski ekki 18 miljóna virði á ári. Jú, fjárhaldsmaðurinn þarf líklega sín laun. Það væri nú ótrúlega mikið hægt að gera gott fyrir mannskepnuna fyrir 18 miljónir á ári
mbl.is Forríkri hundstík hótað lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆ

Allt er nú til. Ég á nú bara ekki orð yfir vitleysunni í veröldinni 
mbl.is Guðir hindúa boðaðir í dómsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föðurlandið

Þá er bara að fara í föðurlandið. Held bara að maður fari að fjárfesta í góðum ullarfötum eða bara kanínuskinnsfötum
mbl.is Talsvert frost inn til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frænkukvöld

Jæja, þá stendur hið ársfjórðungslega frænkukvöld fyrir dyrum hjá mér á morgun.

Ó mæ god!! og allt í drasli hjá frúnni eins og fyrri daginn. Er fyrir löngu hætt að sjá draslið hjá mér en það rifjast svona upp fyrir mér þegar ég á von á gestum að það sé nú betra að taka til og hafa hreint og snyrtilegt á heimilinu svo ættingjar og vinir sendi ekki heilbrigðiseftirlitið á staðinn. Annars fékk ég góð ráð með jólatiltektina. Þar sem er ryk, stráir maður örlitlu glimmeri og þá halda allir að þetta sé englahár. Svo slekkur maður öll ljós og hefur bara kerti. Krúttó!

Ætla að bjóða frænkunum upp á ís, heimagerðan að sjálfsögðu, og margumtalaðar sörur sem ég gerði með systur minni. Var svo að hugsa um að splæsa í jólaöl. Well... hlakka til að hitta þær því þetta eru sannkallaðar hláturgusur þessar frænkur mínar og hafa alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja. Held að það sé varla til venjuleg/eðlileg mynd af okkur því það er alltaf einhver með hláturgrettu og krumpin í keng.Cool 


Sörur

Fór til Ingibjargar systur í dag og við vorum á haus við að baka sörur. Þetta tekur alveg ótrúlega langan tíma en er alveg þess virði því þetta er algjört konfekt.

Ég ætlaði að gera svo svakalega margt annað í dag en það verður bara að bíða. Ætla að reyna að gera aðventukrans í kvöld. Búin að fá greinar og svo á ég fullt af skrauti og kertum til að gera allt flott og fínt.

Í gær fór ég í Jólaþorpið hér í Hafnarfirði og það var voða gaman. það er alltaf voða gaman að kíkja þangað, fullt af fólki og heilmikið af skemmtilegum básum með flottar vörur. Málaðar Jólakúlur, Þæfðar ullarvöru og málverk. Valurinn minn og Hekla frænka nutu þess að skoða og spá í hlutunum. Þau keyptu sér svo heitt súkkulaði með rjóma og  það var sko notalegt mmmmm.... nammmmmi 


Þá er bara að drífa sig

  Jólatónleikar Kvennakórs Reykjavíkur í Grensáskirkju núna beint eftir kvöldmat. Bara þvo sér í framan eftir matinn og fá góða jólatónleika í desert. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00

Þetta er nú húmor

Þetta er einn besti húmor sem ég veit núna í augnablikinu. Aumingja allir þreyttu kallarnir. Það fá ekki nema 4 að sitja saman í afdrepinu. Þeir geta auðvitað alltaf gert eins og börnin, bara setið á gólfinu ef kraðakið er orðið mikið.

Mér finnst nú bara samt ein tegund verslunar sem gæti afsakað það að kallarnir þyrftu smá afdrep fyrir sig og það eru brjóstahaldarabúðirnar.

Ég hélt hreinleg hélt að fólk væri bara fljótara í búðinni ef allir væru með í að henda í körfuna og svo að henda í poka....


mbl.is Pabbar í pössun í Hagkaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nammi namm...

Er að fara út að borða með nýju vinnunni, á jólahlaðborð. Byrja reyndar ekki á fullu fyrr en í desember að vinna þar en þetta heiðursfólk bauð mér samt með. Er sumsé starfsmaður í þjálfun og mæti þangað eftir mína dagmömmuvinnu... Svo skellti ég mér í laugardagsvinnu í brjóstahaldarabúðinni með systrum mínum. Eitthvað voða mikið að gera.

Ætlaði að  vera svaka dugleg að baka með strákunum mínum en eitthvað hefur það farið ofan garðs og neðan, en erum allavega búin að gera brúna randalínu með smjörkremi og það tókst! Höfum nefnilega ekki gert það áður. 

Svo langar mig að búa til heimagerðan brjóstsykur, er búin að finna uppskrift og alles, þökk sé bloggvinum. Vantar bara eitthvað af hráefnum sem ekki fást í venjulegum matvörubúðum. Kemur í ljós hvað verður...

Jæja, best að skola af sér búðarrykið svo maður verði þokkalegur í jólahlaðborðinu á Hilton...

Óverandát


Heimagerður brjóstsykur

Jæja, þá er ég búin að lofa sjálfri mér og strákunum mínum að vera dugleg að baka í nóvember svo við getum notið kræsinganna í desember.

Mig langar alveg hrikalega mikið til að búa til heimagerðan brjóstsykur, en...... ég bara veit ekki um eina einustu sálu sem kann uppskrift að slíku. 

Endilega látið mig vita ef þið kunnið svona eða vitið hvar ég á að leita á netinu Kissing


Ef menn ryksuguðu...

Hann sagði . .. Ég skil ekki af hverju þú ert í brjóstarhaldara,  
það er ekkert til að halda.   Hún svarar - Þú ert í nærbuxum, er það ekki?

Hann spyr .. .. .Eigum við að reyna að skipta um stellingu í kvöld?
Hún svarar . . Það er frábær hugmynd - þú stendur við strauborðið á meðan
 
ég sit í sófanum.

Hann spyr . . . Hvað ertu búin að gera við alla matarpeningana sem  
ég lét þig fá?
Hún svarar . Snúðu þér á hlið og líttu í spegil!

Skrifað á vegg á kvennaklósetti . .. "Maðurinn minn eltir mig  
hvert sem ég fer" Skrifað rétt fyrir neðan . " Nei það er ekki satt"



Spurning. Hvernig sést að karlmaður er að skipuleggja framtíðina?
Svar. Hann kaupir 2 kassa af bjór
.  



Spurning. Af hverju eru giftar konur feitari en ógiftar?
Svar. Þegar þær ógiftu koma heim og sjá hvað er í ísskápnum - fara þær í rúmið.
 
Þegar þær giftu koma heim og sjá hvað er í rúminu - fara þær í ísskápinn.

Maðurinn spyr guð: "Af hverju skapaðirðu konuna svona fallega?"   Guð svarar: "Svo þú myndir elska hana."
En Guð, "Af hverju hafðirðu hana svona heimska?"  
Guð svarar: "Svo hún elski þig."

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband