Norður og svo aftur niður

Komin á suðvesturhornið aftur.

Það var að sjálfsögðu verulega gaman þar sem ég og Guðrún renndum norður á Akureyri síðasta föstudag til að hitta Örnu vinkonu og fara á námskeið í leiðinni.

Guðrún keyrði mest alla leiðina, nema þegar hún fékk krampa í fótinn, þá keyrði égTounge. Á tímabili héldum við að við værum villtar í þokunni og þyrftum að lifa veturinn af á berjum og útigangsrollum uppi á háheiðinni. En nei, svo birti til og við sáum að vegurinn hafði verið færður og nýr Staðarskáli skaut  yfir okkur skjólshúsi í smá stund.

Á Akureyri lærðum við að Sóka, sem var bæði skrítið og skemmtilegt.

Að sjálfsögðu var borðaður góður matur, ekki að spyrja að því.

Á föstudagskvöldinu held ég að ég hafi lofað einhverjum Litháa (eða Letta, ekki alveg viss) að prjóna á hann lopasokkaErrm. Veit ekki alveg hvernig ég kom mér í þetta, en þar sem við sátum í setustofunni hennar Örnu (á gistiheimilinu hennar) og vorum að spjalla við gesti og gangandi, tók ég upp prjónana mína. Jú, mín er nefnilega svo myndarleg að ég er að prjóna þessa líka fínu peysu fyrir sjálfa mig. Þetta þótti Litháanum svo gasalega heimilislegt og fór að tala um íslenskt handverk, ullina og hvað allt svoleiðis sé svo skemmtilegt og sniðugt, og það endaði sumsé með lopasokkumWoundering??

Á laugardagskvöldið ákváðum við vinkonurnar að fara rétt snöggvast í heita pottinn áður en við gengjum til hvílu. Að sjálfsögðu var mikið spjallað eins og kvenna er siður (aðallega bara ég samt, held ég bara) Það endaði að sjálfsögðu með þremur mjúkum risasveskjum tveimur klukkutímum seinna.

Á sunnudeginum kíktum við á einbýlishús og renndum svo í bæinn.

Góð helgi á enda og aftur í gráan hversdagsleikannKissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ekki slaemt ad verda eins og sveskja .... Konur eiga aldrei ad fara uppúr fyrr en zad eru komin sveskjuför á kroppinn!

www.zordis.com, 14.11.2008 kl. 00:27

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Ég var á Akureyri frá miðvikudags - föstudags en fór þá til R-vík í staðinn fyrir að fara að sóka. Fór í fimmtíu ára afmæli hjá vinkonu minni.

Hitti mjög mikið af vinum bæði þar og eins á samkomum í Kærleikanum - Mosaik og Hvítsunnukirkjunni. Fór á mánudaginn á Kaffi Mílanó og hitti nokkra bloggara.

Þetta var s.s. mögnuð ferð.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 14.11.2008 kl. 00:50

3 identicon

Skoða einbylis hús? Á bara að flytja norður?

Persónulega finnst mér betra að hafa þig hér  í "gráa hversdagsleikanum"

Er búin að baka eplakökuna,sem lukkaðist svona glymjandi vel!

Baka hana örugglega aftur!

              Kær kveðja úr Garðabænum

                  Dóra.

Halldóra Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 23:52

4 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Sveskjur eru jú svo svakalega flottar, krumpaðar og glansandi, og svo líka bara voða hollar

Rósa mín, við höfum bara akkurat farið á mis,

Neibb, míns er ekkert að fara að flytja, kanski bara ein af vinkvennum mínum, en þar sem það er alveg óljóst, þá læt ég ekkert uppi

Svala Erlendsdóttir, 15.11.2008 kl. 09:46

5 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Að sóka?

Soffía Valdimarsdóttir, 16.11.2008 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband